MÁNUÐUR TIL STEFNU!
Kæru ljósmyndarar og aðrir velunnarar! (endilega deilið þessari frétt á ljósmyndavini)
Nú er aðeins mánuður til stefnu!
Við fögnum saman stóra ljósmyndadeginum á Hilton þann 25. apríl. Tilefnið er 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands, úrslitakvöld FEP keppninnar og úrslit heimsmeistarakeppninnar í ljósmyndun. Þetta verður einn stærsti ljósmyndaviðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi.
Stjórn Ljósmyndarafélags Íslands hefur unnið hörðum höndum að gera viðburðinn ógleymanlegan og lagði lokahönd á undirbúning í gær. Nú er allt að smella!
Við viljum minna þig á að tryggja þér sæti og vera með, en nú þegar hafa um 200 gestir skráð sig. Það er því ljóst að dagurinn verður bæði vel sóttur og einstaklega skemmtilegur, en eins og alltaf er takmarkað pláss og því mikilvægt að tryggja sér miða.
Frír aðgangur allan daginn en greiða þarf aukalega fyrir kvöldverð
Þetta er frábært tækifæri til að hitta aðra ljósmyndara, deila reynslu, fá innblástur og styrkja tengslanetið. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða hefur starfað lengi í faginu. Þetta verður mikil veisla!
Á staðnum verða magnaðir fyrirlesarar, þau Ragnar Axelsson (RAX), Benjamin Hardman, Kate Kirkman og Brent Kirkman.
Frú forseti, Halla Tómasdóttir kíkir í heimsókn og svo verða vöru- og kynningarbásar frá helstu styrktaraðilum okkar; Ofar, Canon á Íslandi, Sony, Reykjavík Foto og Tækniskólanum.
Við hvetjum þig eindregið til að skrá þig sem fyrst og tryggja þér pláss. Við hlökkum til að sjá þig!
Bestu kveðjur,
Ljósmyndarafélag Íslands