Af hverju er afi minn ekki frægur?

Harpa Rut Hilmarsdóttir hélt flottan og fræðandi fyrirlestur, þann 31. apríl í Hannesarholti, um afa sinn, Sigurð Guðmundsson ljósmyndara, en hann var einn af stofnfélögum Ljósmyndarafélags Íslands árið 1926. https://fb.me/e/61WDeQcj3

Harpa skrifaði þetta í kynningu á fyrirlestrinum: „Ég sá hann sem merkan mann á Íslandi. Á fullorðinsárum fór ég að leita að merkjum um þetta í heimildum en það sem ég fann var ekki í samræmi við tilfinningu mína úr barnæsku.

Ég gerði það því að lokaverkefni mínu í meistaranámi í menningarmiðlun við Háskóla Íslands að reyna að skilja þetta. Ég rakti spor hans og reyndi að fá svar við spurningu sem lengi hefur setið í mér: Af hverju er afi minn ekki frægur?

Í leit að svörum hef ég skoðað ljósmyndir og kvikmyndir úr safni hans, farið í gegnum skjöl og skriflegar heimildir og rætt við fólk sem þekkti hann eða starfaði með honum.

Til að kynna niðurstöður rannsóknarinnar hef ég ákveðið að halda sögustund. Í henni fléttast saman persónulegar minningar, afrakstur heimildavinnu, myndir úr safni hans og brot úr sögu ljósmyndunar og samfélags á Íslandi á 20. öld.

Sögustundin er því bæði leit að manni og leit að svari við spurningunni um hvernig sum líf og lífsverk verða hluti af sögunni á meðan önnur hverfa í skuggann.“‍ ‍

Fyrirlesturinn var afar fróðlegur og gaman að heyra um þátt Sigurðar í stofnun Ljósmyndarafélagsins og um formannstíð hans á tveimur tímabilum í sögu félagisins.

Við óskum Hörpu til hamingju með þetta verkefni og framtíðar hugmyndir hennar um sögu og ævi Sigurðar Guðmundssonar, ljósmyndara.

Texti og ljósmyndir - Guðmundur Viðarsson Formaður. Birt. 5.apríl 2026.

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Previous
Previous

100 ára afmælishátíð sló í gegn!

Next
Next

MÁNUÐUR TIL STEFNU!