SKRÁNING HAFIN Á STÓRU LJÓSMYNDAHÁTÍÐINA
Kæru ljósmyndarar og vinir
Nú fer að líða að stóru ljósmyndahátíð Ljósmyndarafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við FEP og WPC. Stjórn félagsins hefur undanfarin 2 ár lagt mikla vinnu í undirbúning þessa stærsta ljósmyndaviðburðar sem haldinn hefur verið á Íslandi. Þetta verður heill dagur með frábærum fyrirlesurum og verðlaunaafhendingum erlendra samstarfsaðila.
Okkar helstu styrktaraðilar Ofar, Canon á Íslandi, Reykjavík Foto og Sony á Íslandi verða á staðnum og kynna nýjustu vörur sínar og lausnir, og þökk sé þessum fyrirtækjum er aðgangur að laugardagsdagskránni ókeypis en nauðsynlegt er að bóka miða á netinu(í skráningarhlekk neðst)
Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, heiðrar okkur með nærveru sinni og fer í myndatöku með hefðbundinni glerplötutækni til heiðurs 100 ára sögu íslenskrar ljósmyndunar. Táknræn stund sem heiðrar frumkvöðla, handverk og framtíð ljósmyndunar á Íslandi. Veitingar verða seldar á staðnum allan daginn en hátíðinni lýkur svo með glæsilegum kvöldverði og skemmtun.
Kynnir á hátíðinni verður Anna Kristín Scheving, ljósmyndari og stjórnarkona Ljósmyndarafélags Íslands.
HVAR OG HVENÆR:
25. apríl 2026
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2
Húsið opnar kl: 10:00
TILEFNIÐ:
Tilefnið er 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands en auk þess tók félagið höndum saman með FEP (Federation of European Photographers) og WPC (World Photographic Cup) sem munu tilkynna úrslit úr ljósmyndakeppnum sínum þennan sama dag. Þetta verður því einstakt tækifæri til að fagna íslenskri og alþjóðlegri ljósmyndun í senn. Von er á fjölmörgum erlendum gestum á hátíðina. Hátíðin mun öll fara fram á ensku.
VEITINGAR:
Boðið verður upp á snarl og kaffi allan daginn (kaffi, te, vatn, kökur og kex) en einnig verða veitingar seldar á staðnum yfir daginn. Hátíðinni lýkur svo með glæsilegum kvöldverði og skemmtun. Kaupa þarf aðgang að kvöldverði sérstaklega (í skráningarhlekk neðst)
DAGSKRÁ: (með fyrirvara um breytingar)
10:00 – Húsið opnar / Skráning
10:45 – Ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Loga Einarssonar
11:00 – Kate & Brent Kirkman – Sony fyrirlesarar
11:45 – Kaffihlé
12:00 – WPC verðlaunaafhending
13:15 – Hlé (hádegismatur)
13:15 - Myndataka af forseta Íslands á glerplötu - Ljósmyndari Kormákur Máni Hafsteinsson KOX
14:00 – Benjamin Hardman – Canon fyrirlesari
14:45 – Stutt hlé
15:00 – Ragnar Axelsson (RAX) – Leica fyrirlesari
15:45 – Kaffihlé
16:15 – FEP verðlaunaafhending
18:00 – Kvöldverður
19:00 – Partý
22:00 – Húsið lokar
SKRÁNING:
FRÍTT er á viðburðinn en greitt er aukalega fyrir kvöldverð
ATH! Skráning á viðburðinn er nauðsynleg og skráningarmóttaka verður á staðnum.
FYRIRLESARAR:
Fyrirlesarar hátíðarinnar eru svo sannarlega ekki af verri endanum og koma víðsvegar að úr heiminum.
BENJAMIN HARDMAN
Eftir að hafa hafið feril sinn sem ljósmyndari, kvikmyndagerðarmaður og leiðsögumaður á ÍslandI og síðar flutt frá heimkynnum sínum í Ástralíu árið 2015, hefur kjarni starfa Benjamins verið að skapa djúpar sjónrænar sögur af náttúru heimskauta- og norðurslóðasvæða. Skoðunarleiðangur hans á Íslandi hefur smám saman færst frá strandlengjunni inn á afskekktustu svæði hálendisins. Ljósmyndir hans eru knúnar áfram af löngun til að sökkva sér dýpra inn í náttúruna og snúa aftur á sömu staði á mismunandi tímum ársins til að skilja betur þær sjónrænu breytingar sem hver árstíð færir með sér.
Með aukinni dvöl á pólarsvæðum hefur Benjamin sinnt fjölmörgum verkefnum á sviði náttúrusögu og starfað sem ljósmyndaleiðsögumaður frá árinu 2017 á Svalbarða, á Grænlandi og á Suðurskautslandinu. Benjamin hefur komið að ljósmynda- og myndbandsverkefnum fyrir alþjóðleg vörumerki á borð við Netflix, BBC, National Geographic, Disney, DJI, Canon, 66°North, Tesla og fleiri.
KATE & BRENT KIRKMAN
Sterk köllun til að verða atvinnuljósmyndari leiddi Kate frá störfum sínum í markaðsmálum. Í samstarfi við viðskiptavini á borð við FIFA, O2 og BBC öðlaðist hún djúpan skilning á þeim krafti sem ljósmyndir geta haft, bæði gagnvart fyrirtækjum og neytendum. Hún hefur starfað sem skapandi söguljósmyndari í yfir 15 ár og skrifað reglulega greinar og pistla fyrir fagtímarit og er talin einn af leiðandi aðilum í faginu. Brent starfaði í yfir 25 ár við alþjóðlega upplýsingatækni, með sérhæfingu í CRM-lausnum og farsímatækni, áður en hann varð viðurkenndur kvikmyndatökumaður. Sem fyrrverandi hugbúnaðarþróandi á sviði nýjustu tækni býr hann yfir mikilli þekkingu á vef- og farsímatækni, sem gerir þeim kleift að vera ávallt skrefi á undan.
Í dag eru þau hjónin bæði Sony Ambassadors og sérhæfa sig í brúðkaupsljósmyndun. Kate vinnur einnig undir lúxus-boudoir vörumerkinu MUSE og saman reka þau sjónræna efnisstofu sem ber nafnið CREATE.
RAGNAR AXELSSON - RAX
Í yfir 40 ár hefur Ragnar Axelsson, RAX ljósmyndað fólk, dýr og landslag í afskekktustu héruðum heimskautasvæðanna, þar á meðal á Íslandi, Síberíu og á Grænlandi. Í skörpum svart-hvítum myndum sýnir Rax okkur ótrúleg tengsl milli fólksins á heimskautasvæðunum og þeirra öfgakennda umhverfis, tengsl sem nú eru að breytast á djúpstæðan og flókinn hátt vegna fordæmalausra loftslagsbreytinga.
Ragnar starfaði sem fréttaljósmyndari hjá Morgunblaðinu (1976–2020) og hefur jafnframt unnið sjálfstæð verkefni í Lettlandi, Litháen, Mósambík, Suður-Afríku, Kína og Úkraínu. Myndir hans hafa birst í LIFE, Newsweek, Stern, GEO, National Geographic, Time og Polka, og hafa verið sýndar víða.
Ragnar hefur gefið út átta bækur í ýmsum alþjóðlegum útgáfum. Nýjasta bók hans, Arctic Heroes, kom út árið 2020, Jökull árið 2018 með formála eftir Ólaf Elíasson, og Andlit Norðursins árið 2016 með formála eftir Mary Ellen Mark, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2017 í flokki fræðibóka. Aðrar viðurkenningar fyrir verk Ragnars eru fjölmörg íslensk verðlaun í fréttaljósmyndun; Leica Oskar Barnack-verðlaunin (Heiðursviðurkenning); Grand Prize, Photo de Mer, Vannes; og æðsta heiðursmerki Íslands, Riddarakross fálkaorðunnar.
ENDILEGA DEILIÐ ÁFRAM Á LJÓSMYNDAVINI!
Við hvetjum alla ljósmyndara til að mæta, hittast og styrkja tengslanetið. Þetta er einstakt tækifæri til að tengjast bæði íslenskum og erlendum kollegum.
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR!
LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS