Enzo Lucia er samtímaljósmyndari sem sérhæfir sig í gömlum ljósmyndaaðferðum með “wet plate” tækninni. Hann skapar einstaklega fallegar portrettmyndir og kyrralífsmyndir á gler eða málm. Enzo er á leið til Íslands með ferðastúdíóið sitt og ætlar að bjóða upp á myndatökur í húsnæði Street Rats Tattoo, Hverfisgötu 37. Þetta er engin venjuleg ljósmyndataka. Hver mynd er handgerð og einstök. Nú er tækifærið að láta taka af sér flotta portrett mynd á gamla mátann!
Dagsetningar: 23. maí og 6.-7. júní. Mjög takmarkað pláss.