Back to All Events

María Vignir

  • Ljósmyndarafélag Íslands Borgartún 35 Reykjavík Ísland (map)

María Vignir

María Vignir og fyrirlestur um Sigurhans Vignir - Leikhúsljósmyndir

María Vignir er nýútskrifaður grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og mun halda fyrirlestur um Sigurhans Vignir sem var einn af stofnendum Ljósmyndarafélags Íslands, og meðal merkustu heimildarljósmyndara landsins.

Í fyrirlestri sínum fjallar hún um Sigurhans Vignir og ljósmyndir hans úr leikhúsinu en hann fangaði eftirminnilega á filmu líf og starf Þjóðleikhússins á árunum 1950–1965.

Anda leikhússins greip Sigurhans með því að mynda allt frá svipmyndum af saumastofunni og samlestrum að tjaldabaki til stórbrotinna sviðsmynda og prúðbúinna leikhúsgesta.

Sigurhans Vignir einn af 18 stofnendum Ljósmyndarafélags Íslands

Lokaverkefni Maríu, bókin Leikhúsljósmyndir Vignir, birtir 95 ljósmyndir eftir Sigurhans sem setja leikhúslíf um miðbik síðustu aldar í sviðsljósið á ný og í fyrirlestri sínum fjallar hún um ferlið við gerð bókarinnar. 

Fyrirlesturinn fer fram þann 9. september í Húsi Atvinnulífsins Borgartúni 35 og hefst kl. 20.00. 

Léttar veitingar í boði. Allir velkomnir.

Utanfélagsmenn greiða 2.000 kr við inngang.


Previous
Previous
May 23

The Travelling Photo studio

Next
Next
October 14

Af hverju er afi minn ekki frægur?