Harpa Rut Hilmarsdóttir
Harpa Rut Hilmarsdóttir mun halda fræðandi fyrirlestur, þann 14. október hjá Ljósmyndarafélagi Íslands um afa sinn, Sigurð Guðmundsson ljósmyndara, en hann var einn af stofnfélögum Ljósmyndarafélags Íslands árið 1926.
„Ég sá hann sem merkan mann á Íslandi. Á fullorðinsárum fór ég að leita að merkjum um þetta í heimildum en það sem ég fann var ekki í samræmi við tilfinningu mína úr barnæsku.
Ég gerði það því að lokaverkefni mínu í meistaranámi í menningarmiðlun við Háskóla Íslands að reyna að skilja þetta. Ég rakti spor hans og reyndi að fá svar við spurningu sem lengi hefur setið í mér: Af hverju er afi minn ekki frægur?
Í leit að svörum hef ég skoðað ljósmyndir og kvikmyndir úr safni hans, farið í gegnum skjöl og skriflegar heimildir og rætt við fólk sem þekkti hann eða starfaði með honum.
Til að kynna niðurstöður rannsóknarinnar mun ég halda halda sögustund með Ljósmyndarafélagi Íslands. Í henni fléttast saman persónulegar minningar, afrakstur heimildavinnu, myndir úr safni hans og brot úr sögu ljósmyndunar og samfélags á Íslandi á 20. öld.
Sögustundin er því bæði leit að manni og leit að svari við spurningunni um hvernig sum líf og lífsverk verða hluti af sögunni á meðan önnur hverfa í skuggann.“
Fyrirlesturinn er afar fróðlegur og gaman að heyra um þátt Sigurðar í stofnun Ljósmyndarafélagsins og um formannstíð hans á tveimur tímabilum í sögu félagisins.
Við hlökkum til fyrirlesturs um stofnfélaga félagsins og ævi Sigurðar Guðmundssonar, ljósmyndara.
Fyrirlesturinn fer fram í Húsi Atvinnulífsins Borgartúni 35 og hefst kl. 20.
Allir velkomnir utanfélagsmenn griða 2.000 kr við inngang, og veitingar verða flatkökur með hangikjöti, kaffi og gos.