Ljósmyndanámskeið með Antoni Bjarna
Langar þig að læra hvernig á að nota lýsingu í ljósmyndun og taka myndirnar þínar á næsta stig?
Á þessu hagnýta og skemmtilega námskeiði lærir þú hvernig á að nota ljós á faglegan og skapandi hátt. Þú öðlast dýrmæta þekkingu á því hvernig velja á réttan ljósabúnað fyrir hvert verkefni og hvernig þú getur skapað fallegt og faglegt ljós – óháð aðstæðum eða birtu í umhverfinu.
Farið verður yfir bæði tæknilega þætti og skapandi nálganir, og þú færð tækifæri til að prófa búnað frá helstu framleiðendum á markaðnum. Þetta er kjörið tækifæri til að læra í raunverulegum aðstæðum og byggja upp sjálfstraust í notkun ljósabúnaðar.
Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum sem vilja dýpka þekkingu sína og þróa færni sína enn frekar.
Kennari námskeiðsins er Anton Bjarni ljósmyndari sem er með yfir 12 ára reynslu í faginu. Hann hefur starfað með mörgum af fremstu ljósmyndurum landsins og býr yfir víðtækri reynslu bæði á skapandi og tæknilegu sviði. Einnig starfaði hann í 10 ár í ljósmyndavöruverslun og hefur því mjög góða innsýn í búnað og notkun hans.
Á námskeiðinu verður unnið með módel frá Ey-agency - mælt er með að þátttakendur komi með eigin myndavél og minniskort.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er kvöldverður frá Lemon. Vinsamlegast taktu fram í staðfestingarpósti ef þú ert með fæðuóþol eða ofnæmi.
Aðeins 12 sæti eru í boði á fyrsta námskeiðið – tryggðu þér pláss tímanlega!
Skráning á námskeiðið fer fram með því að senda tölvupóst með nafni, símanúmeri og kennitölu á exposure.namskeid@gmail.com
Til að tryggja sér sæti á námskeiðinu þarf að ganga frá greiðslu á reikning.
Mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið, endilega athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú getir fengið námskeiðið niðurgreitt.