(english below)
Kæru ljósmyndarar og vinir
Nú fer að líða að stóru ljósmyndahátíð Ljósmyndarafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við FEP og WPC.
Stjórn félagsins hefur undanfarin 2 ár lagt mikla vinnu í undirbúning þessa stærsta ljósmyndaviðburðar sem haldinn hefur verið á Íslandi.
HVAR OG HVENÆR:
25. apríl 2026
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2
Húsið opnar kl: 10:00
TILEFNIÐ:
Tilefnið er 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands en auk þess tók félagið höndum saman með FEP (Federation of European Photographers) og WPC (World Photographic Cup) sem munu tilkynna úrslit úr ljósmyndakeppnum sínum þennan sama dag. Þetta verður því einstakt tækifæri til að fagna íslenskri og alþjóðlegri ljósmyndun í senn. Von er á fjölmörgum erlendum gestum á hátíðina. Hátíðin mun öll fara fram á ensku.
DAGSKRÁ:
Heill dagur með frábærum fyrirlesurum og verðlaunaafhendingum erlendra samstarfsaðila. Okkar helstu styrktaraðilar; Ofar, Canon á Íslandi, Reykjavík Foto og Sony á Íslandi verða á staðnum og kynna nýjustu vörur sínar og lausnir.
Veitingar verða seldar á staðnum allan daginn en hátíðinni lýkur svo með glæsilegum kvöldverði og skemmtun.
Dagskrá með nákvæmri tímasetningu fyrirlestra, verðlaunafhendinga og kvöldverðar verður send út síðar.
FYRIRLESARAR:
Kate & Brent Kirkman - Brúðkaupsljósmyndun - Sony
Benjamin Hardman - Norður- og suðurpólinn - Canon
Ragnar Axelsson (RAX) - Heimildaljósmyndun á norðurslóðum - Leica
SKRÁNING:
FRÍTT er á viðburðinn en greitt er aukalega fyrir kvöldverð
ATH! Skráning á viðburðinn er nauðsynleg og skráningarmóttaka verður á staðnum.
ENDILEGA DEILIÐ ÁFRAM Á LJÓSMYNDAVINI!
Við hvetjum alla ljósmyndara til að mæta, hittast og styrkja tengslanetið. Þetta er einstakt tækifæri til að tengjast bæði íslenskum og erlendum kollegum.
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR!
Með kærri kveðju
LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS
Stofnendur Ljósmyndarafélags Íslands 7. janúar 1926
Dear photographers and friends,
The time is approaching for the major photography festival of the Icelandic Professional Photographers Association, held in collaboration with FEP and WPC. Over the past 2 years, the board has put a great deal of work into preparing this event, the largest photography event ever held in Iceland. So we truly hope to see you there!
WHERE & WHEN:
April 25th, 2026
Hilton Reykjavík Nordica, Address: Suðurlandsbraut 2
Doors open at 10:00
THE OCCASION:
The event marks the 100 year anniversary of the Icelandic Professional Photographers Association. In addition, we have joined forces with FEP (Federation of European Photographers) and WPC (World Photographic Cup), who will announce the results of their photography competitions on the same day. This will be a unique opportunity to celebrate both Icelandic and international photography. Numerous international guests are expected to attend the festival. The entire event will be held in English.
PROGRAM:
A full day featuring outstanding speakers and award ceremonies hosted by our international partners. Our main sponsors; Ofar, Canon Iceland, Reykjavík Foto, and Sony Iceland will be on site showcasing their latest products and solutions. Food and refreshments will be available for purchase throughout the day, and the festival will conclude with a formal evening dinner and entertainment. A detailed schedule with exact times for lectures, award ceremonies, and the dinner will be sent out at a later date.
SPEAKERS:
• Kate & Brent Kirkman – Wedding Photography – Sony
• Benjamin Hardman – The north & south Polar regions – Canon
• Ragnar Axelsson (RAX) – Documentary Photography in the Arctic – Leica
REGISTRATION:
The event is free of charge, but the evening dinner requires a separate ticket.
Please note: Registration for the event is mandatory
PLEASE SPREAD THE WORD TO OTHER PHOTOGRAPHERS!
We encourage all photographers to attend, connect, and strengthen their professional network. This is a unique opportunity to connect with both Icelandic and international colleagues.
WE LOOK FORWARD TO SEE YOU
BEST REGARDS
THE ICELANDIC PROFESSIONAL PHOTOGRAPHERS ASSOCIATION