Where Pavement Dreams

Þann 25. júní opnar ný sýning eftir Braga Þór Jósefsson í Rennes í Frakklandi.

Á síðasta ári fékk Bragi boð um að taka þátt í listamannadvöl hjá Les Rencontres Photographiques de ViaSilva í Rennes í Frakklandi en þessi samtök hafa í tíu ár staðið fyrir því að bjóða ljósmyndurum í listamannadvöl í ViaSilva, nýju borgarhverfi á jaðri Rennes sem enn er í mótun. Markmiðið er að skapa sjónræna sögu svæðisins í gegnum ólíkar listrænar sýnir þeirra sem þar dvelja. Hlutverk Braga var ekki að kynna hverfið eða skrásetja framkvæmdir heldur að skapa sjálfstætt ljósmyndaverk um staðinn.

Hann eyddi mánuði á svæðinu og skoðaði hvernig náttúra og mannvirki mætast í landslagi sem er stöðugt að breytast. Úr varð myndaserían Where Pavement Dreams sem verður sýnd í Rennes frá 25. júní og kemur jafnframt út í bókarformi hjá Les Éditions de Juillet.

Á næstu dögum mun Bragi deila nokkrum myndum úr verkefninu hér

Bragi Þór Jósefsson býr og starfar í Reykjavík og hefur starfað sem atvinnuljósmyndari frá því að hann lauk ljósmyndanámi árið 1986. Hann er einn af stofnfélögum FÍSL, Félagi íslenskra samtímaljósmyndara, og sat í stjórn félagsins á árunum 2007–2012 og 2017–2022. Hann hefur jafnframt verið virkur þátttakandi í íslensku ljósmyndasamfélagi um árabil.


// On June 25, a new exhibition of Bragi Þórs work will open in Rennes, France.

Last year, Bragi was invited to take part in an artist residency with Les Rencontres Photographiques de ViaSilva in Rennes, France. For the past ten years, the organization has invited photographers to work in residence in ViaSilva, a new district on the outskirts of Rennes that is still taking shape. The aim is to create a visual history of the area through the diverse artistic perspectives of the photographers who spend time there.

Bragi’s role was not to promote the district or document its development, but to create an independent photographic work inspired by the place itself.

He spent a month exploring the area, observing how nature and human-made structures meet within a landscape that is constantly evolving. The result is a photographic series titled Where Pavement Dreams, which will be exhibited in Rennes from June 25 and will also be published as a photobook by Les Éditions de Juillet.

Over the coming days, Bragi will be sharing a selection of images from the project here

Bragi Þór Jósefsson lives and works in Reykjavik, Iceland and has worked as a professional photographer since finishing his photographic studies in 1986. He is a founding member of FÍSL, The Icelandic Contemporary Photography Association, and served on the board 2007 - 2012 and 2017 - 2022 and has been active in the photographic community in Iceland.

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Previous
Previous

Ólöglegar ljósmyndaferðir á Íslandi

Next
Next

Ný stjórnsýslulög um drónaleyfi á friðlýstum svæðum