Ólöglegar ljósmyndaferðir á Íslandi
Ljósmynd tengist fréttinni ekki beint.
Á undanförnu ári hefur stjórn Ljósmyndarafélags Íslands unnið markvisst að því að vekja athygli á starfsemi sem virðist í sumum tilvikum ekki uppfylla íslensk laga- og leyfisskilyrði. Tilefnið er sú þróun sem hefur orðið á síðustu árum, þar sem erlendum aðilum sem bjóða upp á ljósmyndaferðir hingað til lands hefur fjölgað verulega.
Þessi þróun hefur að mörgu leyti verið jákvæð, enda sýnir hún þann mikla áhuga sem Ísland vekur meðal ljósmyndara og ferðalanga. Samhliða þessari aukningu hefur þó einnig komið í ljós að ekki eru allir þeir aðilar sem skipuleggja slíkar ferðir meðvitaðir um þær lögbundnu kröfur sem gilda hér á landi né hafa gert fullnægjandi ráðstafanir til að uppfylla þær.
Sérstaklega á þetta við í þeim tilvikum þar sem skipuleggjendur aka sjálfir með greiðandi þátttakendur um landið í tengslum við ljósmyndaferðir, námskeið eða vinnustofur. Í slíkum tilvikum gilda skýrar reglur samkvæmt íslenskum lögum um réttindi, leyfi og skráningu starfseminnar.
Lagakröfur sem gilda um slíka starfsemi
Þeir aðilar sem hyggjast starfa með þessum hætti á Íslandi þurfa meðal annars að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
hafa gild ökuréttindi sem uppfylla skilyrði fyrir akstri með farþega gegn gjaldi,
hafa rekstrarleyfi útgefið af Samgöngustofu,
nota ökutæki sem er skráð og leyft til farþegaflutninga gegn gjaldi,
og tryggja að öll starfsemin sé rekin í samræmi við íslensk lög, reglugerðir og öryggiskröfur.
Þegar þessum skilyrðum er ekki fullnægt getur starfsemin talist ólögleg. Það er ekki aðeins formsatriði. Hér undir falla mikilvæg atriði sem snúa að öryggi farþega, ábyrgð, tryggingavernd, jafnræði í rekstri og sanngjarnri samkeppni við þá aðila sem starfa löglega á íslenskum markaði.
Aðgerðir stjórnar Ljósmyndarafélags Íslands
Til að bregðast við þessari stöðu hefur stjórn Ljósmyndarafélags Íslands sent á annað hundrað erindi til erlendra skipuleggjenda ljósmyndaferða og vinnustofa á Íslandi. Í þeim erindum hefur verið vakin athygli á þeim lagakröfum sem gilda hér á landi, sérstaklega þegar um er að ræða akstur með greiðandi þátttakendur.
Markmið þessara samskipta hefur ekki verið að torvelda starfsemi eða letja fólk frá því að halda ljósmyndaferðir á Íslandi. Þvert á móti hefur áherslan verið á fræðslu, gagnsæi og að stuðla að því að slík starfsemi fari fram með lögmætum, öruggum og faglegum hætti.
Við höfum litið á þetta sem mikilvægan þátt í því að standa vörð um fagmennsku innan greinarinnar, vernda hagsmuni þeirra sem starfa löglega og tryggja að þátttakendur í ljósmyndaferðum njóti þess öryggis og þeirrar umgjörðar sem þeir eiga rétt á að gera kröfu um.
Árangur verkefnisins
Þessi vinna hefur þegar skilað umtalsverðum árangri. Margar þeirra ferða sem athygli var vakin á voru í kjölfarið fjarlægðar af netinu eða hætt var að auglýsa þær með sama hætti og áður.
Í öðrum tilvikum brugðust skipuleggjendur jákvætt við, þökkuðu fyrir upplýsingarnar og viðurkenndu að þeir hefðu ekki haft fullnægjandi vitneskju um þær reglur sem gilda á Íslandi. Það staðfestir að í sumum tilvikum er ekki um ásetning að ræða heldur skort á upplýsingum og skilningi á íslensku regluverki.
Einnig hafa mörg dæmi verið um að erlendir aðilar hafi í framhaldinu leitað samstarfs við íslenska ferðaþjónustuaðila eða aðra innlenda samstarfsaðila sem uppfylla skilyrði laganna. Með því hefur í mörgum tilvikum tekist að færa starfsemina í löglegt og öruggt horf, þannig að ferðirnar gátu farið fram á réttum forsendum og með meiri vernd fyrir alla sem að þeim koma.
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að markviss fræðsla og fagleg eftirfylgni geti skilað slíkum árangri. Þannig er ekki aðeins verið að stöðva ólögmæta starfsemi, heldur einnig að leiða aðila inn á lögmæta og ábyrga braut.
Af hverju þetta skiptir máli
Ljósmyndaferðir eru mikilvægur hluti af starfsemi margra ljósmyndara og tengjast jafnframt íslenskri ferðaþjónustu með beinum hætti. Því skiptir máli að sá markaður byggist á skýrum leikreglum sem allir virða.
Þegar aðilar starfa án tilskilinna leyfa skapast ósanngjörn staða gagnvart þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem leggja á sig þann kostnað og þá ábyrgð sem fylgir því að starfa löglega. Um leið getur það skapað óvissu um öryggi, tryggingar og ábyrgð ef eitthvað kemur upp á í ferðunum.
Það er sameiginlegt hagsmunamál alls fagfólks í greininni, sem og þátttakenda í slíkum ferðum, að starfsemin sé gegnsæ, lögmæt og örugg.
Áframhaldandi vinna
Stjórn Ljósmyndarafélags Íslands mun áfram fylgjast með þróun þessara mála og beita sér fyrir því að uppbygging greinarinnar byggist á fagmennsku, ábyrgð og virðingu fyrir þeim lögum og reglum sem gilda hér á landi.
Við teljum mikilvægt að halda áfram að upplýsa bæði erlenda og innlenda aðila um þessar skyldur og stuðla þannig að heilbrigðu rekstrarumhverfi, auknu öryggi og sanngjarnri samkeppni innan ljósmynda- og ferðaþjónustugeirans á Íslandi.
Ábendingar
Ljósmyndarafélag Íslands hvetur þau sem hafa upplýsingar eða ábendingar um ferðir eða vinnustofur sem kunna að vera reknar án tilskilinna leyfa til að hafa samband við félagið. Stjórn mun taka slík mál til frekari skoðunar og koma þeim í viðeigandi farveg. Hægt er að koma ábendingum á stjórn með tölvupósti á stjorn@ljosmyndarafelag.is eða með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Farið verður með slíkar ábendingar sem trúnaðarmál og uppruni þeirra ekki gefinn upp.