Ný stjórnsýslulög um drónaleyfi á friðlýstum svæðum

English version here

Ljósmyndarafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri stjórnsýsluframkvæmd Náttúruverndarstofnunar sem tók gildi 17. maí 2026. Samkvæmt henni er drónaleyfum „í afþreyingar- og fræðsluskyni" hafnað á meira en 25 friðlýstum svæðum um allt land, þar á meðal Goðafossi, Gullfossi, Geysi, Mývatni, Háafossi, Látrabjargi, Skógafossi, Dyrhólaey, Hornströndum, Snæfellsjökulsþjóðgarði og Friðlandi að Fjallabaki. Á sama tíma og leyfi fyrir kvikmyndaverkefni, auglýsingar, sjónvarp og fréttir eru áfram veitt á sömu svæðum. Einnig er vert að nefna að Náttúruverndarstofnun hefur samþykkt leyfi til viðburðarhalds og lendingar þyrlu við Jökulsárlón, þetta kemur fram í leyfisbréfi Náttúruverndarstofnunar

Drónaljósmyndun er í dag sjálfsagður hluti af starfi ljósmyndara. Félagið telur að framkvæmdin mismuni starfsgreininni: sama flug, með sama búnaði og sömu hugsanlegu áhrifum á náttúru og gesti, er heimilað einum hópi en bannað öðrum eftir því í hvaða tilgangi er flogið. Stórar erlendar framleiðslur halda aðgangi að svæðunum á meðan íslenskum ljósmyndurum, leiðbeinendum og litlum fyrirtækjum er vísað frá, jafnvel þótt starfsemi þeirra hafi fram að þessu verið flokkuð og gjaldfærð sem atvinnustarfsemi. Þetta snýst því ekki eingöngu um tæknibúnað heldur einnig um starfsskilyrði, aðgengi að verkfærum og framtíð ákveðinnar tegundar myndsköpunar á Íslandi. Þá teljum við einnig að sú stjórnsýsluframkvæmd sem nú hefur verið tekin upp leiði líklegar til aukningar á ólöglegu drónaflugi heldur en fækkunar, þar sem þeir aðilar sem vilja fara eftir reglum og sækja formlega um leyfi eru í reynd útilokaðir frá viðkomandi svæðum á meðan eftirlit með ólögulegu flugi er takmarkað.

Félaginu er ekki kunnugt um að stofnunin hafi lagt fram nein gögn sem styðja synjanirnar. Ákvarðanir sem skerða atvinnufrelsi félagsmanna verða að byggja á gögnum og málefnalegum forsendum og þola skoðun. Það á ekki síst við þegar fyrirliggjandi gögn stofnunarinnar sjálfrar benda ekki til þess að umrædd starfsemi valdi truflun.

Félagið bendir á að innan sömu stofnunar er þegar til fyrirmynd að lausn: í Vatnajökulsþjóðgarði gilda stigskiptar, svæðisbundnar reglur um drónaflug sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað. Slíkt fyrirkomulag samræmir náttúruvernd og atvinnufrelsi mun betur en fortakslaust bann sem beinist að afmörkuðum hópi.

Ljósmyndarafélag Íslands skorar á Náttúruverndarstofnun að endurskoða framkvæmdina og á Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið að taka kærur vegna hennar til efnislegrar og skjótrar meðferðar. Félagið styður félagsmenn sína sem leita réttar síns í málinu og þar á meðal er Jeroen Van Nieuwenhove, sem kært hefur synjun stofnunarinnar til ráðuneytisins. Félagið stendur með rétti ljósmyndara til að starfa á sanngjörnum, gagnsæjum og faglega rökstuddum forsendum um leið og við virðum og styðjum vernd íslenskrar náttúru.

Hvað hefur félagið gert?

Stjórn Ljósmyndarafélags Íslands hefur þegar gripið til eftirfarandi aðgerða:

  • Birt yfirlýsingu á vef og samfélagsmiðlum Ljósmyndarafélagsins þar sem við lýsum yfir þungum áhyggjum af framkvæmdinni og rökstyðjum afstöðu okkar.

  • Undirbúið og sent formlegt erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhanns Páls Jóhannssonar, þar sem við skorum á ráðherra að beita sér fyrir endurskoðun framkvæmdarinnar og tryggja efnislega og skjótvirka meðferð kæra.

  • Undirbúið og sent bréf til forstjóra Náttúruverndarstofnunar, Sigrúnar Ágústsdóttur, þar sem við förum fram á endurskoðun, gagnsæi um þau gögn sem ákvörðunin byggist á, og formlegt samráð við hagaðila, þar á meðal Ljósmyndarafélagið.

  • Veitt stuðning við félagsmenn sem hafa þegar fengið synjanir, þar á meðal Jeroen Van Nieuwenhove sem hefur kært ákvörðun Náttúruverndarstofnunar til ráðuneytisins.

Hvað getið þið gert?

Við hvetjum félagsmenn og aðra ljósmyndara sem:

  • hafa fengið synjanir á drónaleyfum á grundvelli nýju framkvæmdarinnar, eða

  • telja að breytingarnar hafi veruleg áhrif á starfsemi þeirra,

til að skrá það hjá félaginu með tölvupósti á stjorn@ljosmyndarafelag.is (stutt lýsing á tilviki, hvar og hvenær, og hvort um atvinnustarfsemi sé að ræða). Slíkar upplýsingar styrkja málstað félagsins og geta nýst við áframhaldandi samtal við stjórnvöld og stofnanir.

Einnig hvetjum við þá sem vilja kynna sér málið nánar til að lesa umfjöllun Jeroen Van Nieuwenhove:

Málinu hefur jafnframt verið gerð grein á mbl.is

Stjórn Ljósmyndarafélags Íslands mun halda áfram að fylgjast náið með framvindu málsins og beita sér fyrir því að mótaðar verði sanngjarnar, gagnsæjar og faglega rökstuddar reglur sem bæði vernda viðkvæma náttúru og tryggja eðlilegt svigrúm fyrir faglega ljósmyndun og kennslu.

Sjá tilkynningu um ný stjórnsýslulög á vef Nátttúverndarstofunar

Stjórn Ljósmyndarafélags Íslands - 5. júní 2026

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Previous
Previous

Where Pavement Dreams

Next
Next

Sony World Photography Awards