TAKK FYRIR MIG
Kæru ljósmyndarar, velunnarar, vinir og samstarfsaðilar
Eftir sex ár í stjórn Ljósmyndarafélags Íslands er komið að kveðjustund hjá mér, í bili allavega. Ég sagði formlega af mér á síðasta aðalfundi 11. mars, en kláraði síðasta sprettinn með stjórninni fram yfir afmælishátíð félagsins á Hilton nú í lok apríl, sem var mitt síðasta verkefni með stjórninni, og þvílíkur endapunktur.
Þetta hefur verið ótrúlega þroskandi og gefandi tími. Að fá að taka þátt, vinna með og læra af ykkur frábæra fólki og ekki síst af fólkinu sem sat í stjórn með mér, þeim Gumma, Önnu, Heidu, Ólínu og Gunnari. Þau eru algerar rokkstjörnur. Það er ekki sjálfgefið að ná svona vel saman og halda dampi í sjálfboðastarfi ár eftir ár, en þessi hópur gerði það einhvernveginn auðveldlega.
Á þessum árum hef ég fengið að koma að verkefnum sem hafa skipt máli fyrir félagið, eins og að opna félagið fyrir öllum löglegt starfandi ljósmyndurum, sem hefur haft jákvæð áhrif bæði á fjölgun félagsmanna og iðnina í heild. Við lögðum líka mikla áherslu á að fjölga fyrirlestrum og viðburðum því það skiptir máli að hittast og vera saman. Við gerðumst sýnilegri á samfélagsmiðlum og stóðum fyrir miklum úrbótum á heimasíðu félagsins ásamt því að auka samvinnu við styrktaraðila okkar. Okkar stærsta verkefni undanfarin ár var svo 100 ára afmælishátíð félagsins sem er ný yfirstaðin.
Ég hef kynnst ótrúlega mikið af fólki á fundum, bjórkvöldum, árshátíðum, afmælishátíðum, jólahlaðborðum og öðrum viðburðum félagsins, fólki sem ég hefði sennilega aldrei annars kynnst og tek því með mér frá þessu ferðalagi marga frábæra vini og góð viðskiptasambönd.
Ég er stolt af því sem við höfum gert saman.
Mig langar líka að hvetja ykkur sem hafið áhuga að taka þátt í starfi félagsins að bjóða ykkur fram í stjórn. Það skiptir máli að fólk stígi inn, gefi öðrum færi á að stíga til hliðar, leggi sitt af mörkum og sinni sínu félagi. Það er það sem heldur þessu gangandi. Svo ef þú hefur einhvern tímann hugsað „ég gæti lagt eitthvað af mörkum“ gerðu það þá. Það skiptir meira máli en þú heldur.
Þið eruð frábær!
Takk fyrir mig.
Rán Bjargar