Stefnumót við fortíðina

Það er áralöng hefð hjá ÁLFkonum að setja upp nýja ljósmyndasýningu í Lystigarðinum á Akureyri í sumarbyrjun. Fyrir hverja sýningu er ákveðið þema til að vinna eftir. Að þessu sinni var ákveðið að helga sýninguna 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands sem er á þessu ári. Upp kom sú hugmynd að vinna með 100 ára gamlar ljósmyndir frá Akureyri sem varðveittar eru á Minjasafninu. Allar unnu hver í sínu lagi og reynt var að finna staðinn sem ljósmyndarinn hafði hugsanlega staðið á þegar hann tók myndina. Þegar staðurinn var fundinn stilltu þær sér upp með myndavélarnar og smelltu af.

Mikið hefur breyst í bænum á 100 árum og var oft á tíðum mjög erfitt að reyna ná góðum myndum þar sem byggingar eða trjágróður skyggðu á allt útsýni. Það kom því skemmtilega á óvart að sjá að þó að mikið hafi breyst þá standa enn uppi hús sem sjá má á þessum gömlu myndum.

Frábært framtak hjá ÁLFkonum og við hvetjum alla sem eiga leið hjá að skoða þessa flottu sýningu sem stendur allt árið, eða fram að næstu sýningu.

Einnig er hægt að skoða sýninguna HÉR

ÁLFkonur er hópur kvenna sem hefur ljósmyndun að áhugamáli. Hópurinn var stofnaður árið 2010 og hittist reglulega á fundum þar sem ýmislegt skemmtilegt tengt ljósmyndun er rætt og krufið til mergjar. Þær halda sýningar reglulega, meðal annars árlega í Lystigarðinum á Akureyri. Á haustin og vorin fara þær saman í helgarferðir þar sem áhugamálið er stundað af kappi og fyllt er á orkutankinn. Þetta eru bæði gefandi og endurnærandi ferðir þar sem ljósmyndun, vinskapur og gleði ráða rikjum.

Álfkonur eru:

Agnes H. Skúladóttir

Berglind H. Helgadóttir

Guðný Pálína Sæmundsdóttir

Gunnlaug E. Friðriksdóttir

Hafdís G. Pálsdóttir

Halla S. Gunnlaugsdóttir

Helga H. Gunnlaugsdóttir

Hrefna Harðardóttir

Inga Dagný Eydal

Kristjana Agnarsdóttir

Lilia Guðmundsdóttir

Linda Ólafsdóttir

Margrét Elfa Jónsdóttir

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Next
Next

TAKK FYRIR MIG