100 ára afmælishátíð sló í gegn!

Í gær fór fram einn stærsti ljósmyndaviðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi þegar Ljósmyndarafélag Íslands hélt upp á 100 ára afmæli sitt með glæsilegri hátíð á Hilton Reykjavík Nordica. Viðburðurinn var skipulagður í samstarfi við FEP (Federation of European Photographers) og WPC (World Photographic Cup) og laðaði að sér fjölda gesta, bæði innlendra og erlendra, en alls bárust rúmlega 500 skráningar á viðburðinn og færri komust að en vildu.

Anna Kristín Scheving, stjórnarkona Ljósmyndarafélags Íslands, var kynnir dagsins og leiddi dagskrána af miklu öryggi og fagmennsku. Hún hélt stemningunni léttri með hressum og skemmtilegum tilsvörum og átti stóran þátt í því hversu frábær dagurinn var.

Dagskráin stóð yfir allan daginn og bauð upp á fjölbreytta fyrirlestra frá þekktum ljósmyndurum, þeim Kate & Brent Kirkman, Benjamin Hardman og Ragnari Axelssyni - RAX. Fyrirlestrarnir vöktu mikla athygli og veittu gestum innsýn í ólíkar nálganir og reynslu úr heimi ljósmyndunar.

Einn af hápunktum dagsins var heimsókn forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, sem tók þátt í táknrænni myndatöku með hefðbundinni glerplötutækni í tilefni af 100 ára sögu ljósmyndunar á Íslandi. Kormákur Máni Hafsteinsson - KOXI, sem hefur djúpa þekkingu á gömlum ljósmyndaaðferðum og hefur sérhæft sig í slíkri tækni tók myndina við mikinn fögnuð viðstaddra. Forsetinn hélt jafnframt óvænta og áhrifamikla ræðu sem setti sterkan svip á hátíðina og skilaði sér út um allan heim í beinu streymi.

Á sama tíma voru úrslit tilkynnt í alþjóðlegum ljósmyndakeppnum FEP og WPC, þar sem sigurvegarar voru heiðraðir. Viðburðurinn skapaði einstakt tækifæri til að tengja saman íslenskt og alþjóðlegt ljósmyndasamfélag og fagna sameiginlegri ástríðu fyrir miðlinum. Þrír ljósmyndarar frá Íslandi komust í úrslit í FEP keppninni, þau Jeroen Van Nieuwenhove sem hlaut silfurverðlaun í Landscape flokki og bronsverðlaun í Nature flokki, Marco Di Marco sem hlaut 7. sætið í Landscape flokki og fékk einnig verðlaunin “Eldgosamynd ársins” og Rán Bjargardóttir sem lenti í 8. sæti í Nature flokki. Við óskum þeim og sigurvegurunum öllum innilega til hamingju með frábæran árangur.

Sérstakar og einlægar þakkir fá styrktaraðilar hátíðarinnar; Ofar, Canon á Íslandi, Reykjavík Foto, Sony á Íslandi og Tækniskólinn en án þeirra hefði viðburðurinn ekki orðið að veruleika í þessari mynd. Framlag þeirra gerði það mögulegt að bjóða upp á metnaðarfulla dagskrá, frábæra fyrirlesara og opinn aðgang fyrir gesti, auk þess sem þeir kynntu nýjustu tækni og lausnir sem vöktu mikinn áhuga meðal viðstaddra. Stuðningur þeirra er ómetanlegur fyrir þróun og eflingu ljósmyndunar á Íslandi.

Stjórn Ljósmyndarafélags Íslands, þau Guðmundur Viðarson, Heida Björnsdóttir, Anna Kristín Scheving, Ólína Margeirsdóttir, Gunnar Leifur Jónasson og Rán Bjargar eiga sérstakt hrós skilið fyrir þrotlausa vinnu síðustu ára við skipulagningu og utanumhald viðburðarins. Undirbúningurinn hefur verið umfangsmikill og krafist mikillar elju og metnaðar, sem skilaði sér í einstaklega vel heppnaðri hátíð.

Hátíðinni lauk með kvöldverði yfir fögrum tónum Málmblásarakvintet MÍT og ljúfri samveru þar sem þátttakendur áttu notalega stund saman eftir viðburðaríkan dag.

Ljósmyndarafélag Íslands þakkar ykkur öllum kærlega fyrir komuna og daginn í heild. Þið gerið félagið okkar að því sem það er. Það var frábært að sjá að helmingur af þeim 500 gestum sem komu, voru íslenskir ljósmyndarar og velunnarar sem hafa ástríðu fyrir iðn sinni. 

Síðast en ekki síst viljum við þakka Gunnari Leifi stjórnarmanni og hirðljósmyndara félagsins sem stóð vaktina á myndavélinni eins og svo oft áður og sá um að fanga þessi frábæru augnablik yfir daginn sem sjá má í meðfylgjandi myndum.

Nú er tímabært að stjórn taki sér vel verðskuldaða hvíld eftir annasama tíma. Við ætlum snemma í sumarfrí og komum aftur með reglulega dagskrá í haust.

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Next
Next

Af hverju er afi minn ekki frægur?