Undirbúningi við World Photographic Cup 2027, heimsbikarkeppni landsliða í ljósmyndun, fer nú að ljúka. Fyrsta yfirferð innsendra ljósmynda er lokið og dómgæsla hafin. Alls taka 27 landslið þátt í keppninni sem haldin er í Kanada.
Ísland er ekki með landslið í keppninni, að þessu sinni, en undirbúningur að stofnun landsliðs mun hefjast frá og með næsta aðalfundi félagsins á næsta ári.
Við hvetjum félagsmenn til að fylgjast með þessum alþjóðlega viðburði og fjölbreyttum verkum ljósmyndara víðs vegar að úr heiminum.
Þátttökuþjóðirnar að þessu sinni árið 2027 eru Ástralía, Austurríki, Barbados, Belgía, Bretland, Bandaríkin, Chile, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Japan, Kanada, Malasía, Mexíkó, Noregur, Nýja-Sjáland, Portúgal, Singapúr, Slóvakía, Spánn, Sviss, Svíþjóð og Tékkland.
Liðsstjórar landsliða munu kynna keppendur sína á næstunni, en keppnismyndir birtast ekki fyrr en 23. Nóvember á vef WPC. https://worldphotographiccup.org/
Innan skamms mun svo WPC kynna liðsmenn landanna á Facebook- og Instagram-síðum keppninnar. Úrslitakeppnin fer svo fram í Calgary, Alberta í Kanada dagana 23 til 27 apríl 2027.
Við óskum öllum þátttakendum góðs gengis og hlökkum til að sjá myndirnar þegar þær verða birtar.
Allir þeir ljósmyndarar hérlendis sem vilja taka þátt geta sent beiðni til okkar í stjórn félagsins með þátttöku 2028 í huga. Sendið fyrirspurnir á: stjorn@ljosmyndarafelag.is
Ljósmyndarafélag Íslands