Sólmyrkvi á Spáni 2027
Ljósmyndarafélagi Íslands bárust eftirfarandi upplýsingar um áhugaverðan möguleika fyrir þá sem ætla sér að mynda sólmyrkvann á Spáni þann 2. ágúst 2027.
Viðburðurinn BVEV27 verður haldinn við strendur Cádiz á suður-Spáni, þar sem gert er ráð fyrir meira en 4 mínútna sólmyrkva. Fyrir ljósmyndara skipta þessar 4 mínútur auðvitað gríðarlegu máli, þar sem meira rými gefst til að ná þeim myndum sem stefnt er að.
Á svæðinu verður meðal annars boðið upp á:
• Afmarkað svæði fyrir ljósmyndara og farartæki
• Sameiginlegt svæði
• Öryggisgæslu og salerni
• Matar- og drykkjarþjónustu
• Sameiginleg aðstaða í sérstöku skuggaplássi
• Fyrirlestra og fræðslu um stjörnufræði
• Fyrir ákveðin farartæki er möguleiki á komu 1. ágúst og gistingu í farartækinu aðfaranótt 2. ágúst
• Unnið er að möguleika á beinni útsendingu á stórum skjá frá H-alfa sjónauka
Þátttakendur koma á eigin farartæki og BVEV27 sér um skipulagðan aðgang, frátekið svæði og þá aðstöðu sem tengist áhorfi á sólmyrkvann.
Þeir sem hafa áhuga geta kynnt sér mismunandi möguleika, verð, skilmála og fleira HÉR
Einnig má smella beint á þetta viðhengi til að taka frá pláss!