LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS
AÐSEND GREIN
Freydís Heiðarsdóttir - atvinnuljósmyndari í Noregi
Sjálfboðastarf er dýrmætt. En þegar ólaunuð vinna ljósmyndara er kynnt sem sérstakt tækifæri fyrir þá sem vinna hana þurfum við að staldra við. Hvar liggja mörkin milli þess að gefa vinnu sína af fúsum og frjálsum vilja og þess að ætlast sé til hennar án endurgjalds?
Ég sá nýlega auglýsingu þar sem óskað var eftir áhugaljósmyndurum til að taka myndir fyrir íþróttafélag. Verkefnið var ólaunað en kynnt sem „frábært tækifæri“ til að öðlast reynslu, æfa sig og þróa eigin stíl.
Þetta fékk mig til að hugsa. Ekki vegna þess að ég hafi eitthvað á móti sjálfboðastarfi. Þvert á móti er það ómetanlegt, sérstaklega í íþrótta- og æskulýðsstarfi. En mér finnst mikill munur á því að biðja um aðstoð og því að kynna ólaunaða vinnu eins og verið sé að gera þeim sem vinnur hana sérstakan greiða.
Þegar manneskjan með myndavélina verður starfsmaður
Ég bý í Noregi og starfa hér sem atvinnuljósmyndari. Eins og svo margir byrjaði ég þó sem áhugaljósmyndari. Ég veit hversu dýrmætt það er að fá að æfa sig, prófa nýja hluti og byggja upp reynslu. En ég veit líka hversu erfitt getur verið að losna úr hlutverki „manneskjunnar sem á myndavél“.
Margir ljósmyndarar kannast við setningar á borð við þessar:
„Þú átt svo góða myndavél, geturðu ekki bara tekið hana með?“
„Okkur vantar bara nokkrar myndir.“
„Þú þarft ekkert að vinna myndirnar. Við viljum bara fá þær eins og þær koma úr vélinni.“
Allt í einu ertu ekki lengur gestur í afmæli, brúðkaupi eða annarri veislu. Þú ert komin til vinnu. Þú fylgist með augnablikunum í gegnum myndavélina í stað þess að njóta þeirra með hinum gestunum. Síðan kemur pressan að skila myndunum. Kannski hafðir þú hvorki tíma né aðstöðu til að taka þær og vinna eins og þú hefðir viljað. Samt tengja aðrir myndirnar við þig og gæði þinnar vinnu. Er þetta alltaf reynslan og tækifærið sem við eigum að vera svo þakklát fyrir?
Það er meira á bak við myndina en myndavélin.
Ljósmyndun krefst tíma, þekkingar og reynslu. Að baki fullunninni mynd liggja oft undirbúningur, ferðalög, búnaður, myndaval og eftirvinnsla. Stór hluti vinnunnar er ósýnilegur þeim sem fær myndirnar afhentar. Góð myndavél vinnur ekki þessa vinnu sjálf.
Það að einhver sé áhugaljósmyndari gerir tíma hans heldur ekki minna virði.
Áhuginn getur verið ástæða þess að fólk velur að gefa vinnu sína, en hann á ekki að verða sjálfgefin réttlæting fyrir því að greiða ekkert fyrir hana. Ég upplifi töluverðan mun á Íslandi og Noregi hvað þetta varðar. Í mínu starfsumhverfi hér í Noregi finnst mér almennt borin meiri virðing fyrir ljósmyndun sem atvinnu og vinnunni sem liggur að baki myndunum. Þetta er mín reynsla, en hún vekur hjá mér spurningar um hvernig við tölum um ljósmyndun og verðmæti hennar á Íslandi.
„Reynsla“ og „sýnileiki“ greiða ekki allan kostnaðinn
Mín upplifun er að margir ljósmyndarar á Íslandi eigi erfitt með að fá sanngjarnt greitt fyrir vinnu sína. Svört vinna og óeðlileg verðsamkeppni gera stöðuna enn erfiðari. Þegar það verður viðtekið að fólk vinni ókeypis gegn loforðum um „reynslu“ eða „sýnileika“ getur það grafið undan verðmæti starfsins. Þá skapast væntingar um að ljósmyndun eigi helst að kosta lítið eða ekkert.
Auðvitað getur ólaunað verkefni verið lærdómsríkt. Það getur verið meðvituð ákvörðun ljósmyndarans að taka þátt í góðgerðarmálum, styðja félagsstarf eða prófa eitthvað nýtt. En áhugaljósmyndarar eiga ekki að þurfa að vinna endalaust ókeypis til að sanna sig eða eiga von um greiðslu síðar. Það er líka ákveðin mótsögn í því að myndir séu taldar nógu mikilvægar til að leita sérstaklega að einhverjum sem getur tekið þær, en ekki nógu mikilvægar til að greiða fyrir vinnuna.
Biðjum heiðarlega um sjálfboðastarf
Félög og samtök hafa mismunandi fjárhagslegt svigrúm. Stundum er einfaldlega ekki til fé til að greiða fyrir ljósmyndun. Þá er eðlilegt að óska eftir sjálfboðaliðum og útskýra verkefnið af hreinskilni:
„Okkur vantar sjálfboðaliða til að ljósmynda starfið okkar og værum mjög þakklát fyrir aðstoðina.“
Þar er viðurkennt að verið sé að biðja um framlag sem hefur verðmæti. Annað viðhorf birtist þegar sagt er:
„Við bjóðum þér frábært tækifæri til að öðlast reynslu með því að vinna fyrir okkur.“
Þá er framlag ljósmyndarans sett fram sem greiði við hann sjálfan. Munurinn kann að virðast lítill í orðalagi, en hann skiptir máli fyrir virðinguna sem vinnunni er sýnd.
Kennum nýjum ljósmyndurum að meta eigin vinnu
Ég fagna öllum sem hafa áhuga á ljósmyndun, hvort sem þeir mynda á síma eða nota dýran myndavélabúnað. Áhugafólk auðgar ljósmyndunina og margir atvinnuljósmyndarar stigu sín fyrstu skref þar.
Þess vegna finnst mér sérstaklega mikilvægt að fólk sem er að byrja fái hvatningu til að meta eigin tíma, þekkingu og vinnu. Það þarf að geta sett mörk og ákveðið sjálft hvaða verkefni það vill gefa vinnu sína í.
Við sem höfum starfað lengur í greininni berum líka ábyrgð á því að ræða þessi mál og miðla reynslu okkar.
Sjálfboðastarf á að vera frjálst val.
Ljósmyndari sem gefur vinnu sína leggur fram verðmæti og á skilið þakklæti fyrir það framlag. Við þurfum að standa vörð um að ljósmyndun geti áfram verið raunverulegt starf sem fólk hefur atvinnu af. Það byrjar meðal annars á því hvernig við tölum um vinnuna — og hvort við viðurkennum verðmæti hennar.
FREYDÍS HEIÐARSDÓTTIR