JÓLAHLAÐBORÐ LÍ 2025

// English below

Kæru félagsmenn, gestir og styrktaraðilar Ljósmyndarafélags Íslands

Við viljum færa ykkur innilegar þakkir sem mættuð á Jólahátíð Ljósmyndarafélags Íslands í gær 11. desember. Það var okkur ómetanlegt að fá að fagna þessum tíma saman með ykkur og skapa skemmtilega jólastemningu í anda félagsins. Yndislegt að sjá ykkur öll og skemmta okkur saman. Þetta var algerlega frábært kvöld. Veitingarnar voru sannarlega ekki af verri endanum og vonum við að allir hafi farið saddir og sælir heim.

Sérstakar þakkir fær Sveinn Speight fyrir fræðandi fyrirlestur sem var bæði innblástur og hvatning fyrir okkur öll. 

Einnig viljum við þakka eftirfarandi styrktaraðilum okkar sérstaklega fyrir rausnarlega þátttöku og þau glæsilegu happadrættisverðlaun sem gerðu kvöldið enn skemmtilegra. Við kunnum innilega að meta að þið gefið ykkur tíma til að taka þátt, mæta og styðja okkur ljósmyndara:
Ofar / Canon á Íslandi, Reykjavik Foto, Sony á Íslandi, DJI Reykjavík, Beco, Silli kokkur, Advania, Verandi, Nói Siríus, Hugbúnaðarsetrið Adobe á Íslandi, Hertz bílaleiga, Cibo Amore, Gullsmiðja Óla, 2Guys, Brasa restaurant, Olifa, Pronto partners, Palóma föt og skart, Regalo, Blue Hotel Fagrilundur og Lova Iceland.

Þessi fyrirtæki gerðu okkur kleift að búa til hvorki meira né minna en 52 vinninga sem þýddi að ALLIR sem mættu fengu vinning! Ekki amalegt það!

Við hlökkum til að sjá ykkur á fleiri viðburðum og verkefnum á nýju ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar.

Með kærri þökk og góðum óskum
Ljósmyndarafélag Íslands

Gunnar Leifur okkar sá um myndirnar að venju. Takk Gunnar fyrir að fanga kvöldið!

// Dear members, guests, and sponsors of the Icelandic Professional Photographers Association

We would like to extend our heartfelt thanks to all of you who attended our Christmas celebration yesterday, December 11th. It meant a great deal to us to be able to celebrate this season together with you and to create a joyful Christmas atmosphere in the spirit of the association. It was wonderful to see you all and to enjoy ourselves together. It was a fantastic evening.

The refreshments were certainly top-notch, and we hope everyone went home happy.

Special thanks go to Sveinn Speight for an informative lecture that was both inspiring and motivating for us all.

We would like to extend our sincere thanks to the following sponsors for their generous support and for the magnificent raffle prizes that made the evening even more enjoyable. We truly appreciate you taking the time to participate, attend, and support us photographers:
Ofar / Canon in Iceland, Reykjavik Foto, Sony in Iceland, DJI Reykjavík, Beco, Silli kokkur, Advania, Verandi, Nói Siríus, Adobe Software Center in Iceland, Hertz Car Rental, Cibo Amore, Óli’s Goldsmith Workshop, 2Guys, Brasa Restaurant, Olifa, Pronto Partners, Palóma Clothing and Jewelry, Regalo, Blue Hotel Fagrilundur, and Lova Iceland.

These companies enabled us to put together no fewer than 52 prizes, which meant that EVERYONE who attended won a prize! Not bad at all!

We look forward to seeing you at more events and projects in the new year. Wishing you all the very best over the holidays.

With heartfelt thanks and warm wishes,
The Icelandic Professional Photographers Association

As usual, Gunnar Leifur took care of photos. Thank you, Gunnar, for capturing the evening!


Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Previous
Previous

FEP VERÐLAUNIN 2026

Next
Next

Ljósmyndarafélag Íslands fagnar nýsveinum í ljósmyndun 2025