World Photographic Cup
Á næsta ári fer fram heimsmeistarakeppni í ljósmyndun hér á Íslandi á vegum World Photography Cup (WPC).
Ljósmyndarafélag Íslands hyggst því setja saman öflugt úrvalslið íslenskra ljósmyndara til þátttöku í keppninni. Liðsstjórn fyrir Landslið Íslands í ljósmyndun er í höndum félagsins.
Við teljum okkur svo sannarlega eiga fullt erindi í slíka keppni og höfum þegar valið nokkra ljósmyndara sem koma til greina í lið Íslands. Þátttaka í þessu verkefni getur sett okkur á kortið á alþjóðavísu og opnað ný tækifæri fyrir íslenska ljósmyndun.
ATHUGIÐ: Ekki er skilyrði að vera félagsmaður í Ljósmyndarafélaginu til að vera í liðinu. Við viljum heyra frá sem flestum áhugasömum ljósmyndurum, fá ykkar sjónarmið og tillögur um hverjir ættu að skipa þetta landslið. Einu skilyrðin eru að allir í liðinu starfi að einhverju eða öllu leyti sem ljósmyndarar og fylgi faglegum stöðlum í starfi sínu.
Flokkarnir í keppninni eru alls 10:
Commercial
Illustration / Digital Art
Nature / Landscape
Nature / Wildlife
Illustrative Portrait
Natural Portrait
Reportage / Photojournalism
Sports
Wedding Open
Wedding Reportage (Photojournalism)
Bæði eru veitt verðlaun til einstakra ljósmyndara og einnig fyrir árangur liðanna í heild. Nánari upplýsingar um keppnina má finna HÉR
Við hvetjum þig, kæri ljósmyndari, til að hafa samband ef þú hefur áhuga á að taka þátt í liðsvali eða ert sjálfur tilbúinn að taka slaginn á heimsvísu. Hægt er að senda okkur tölvupost á stjorn@ljosmyndarafelag.is
Endilega deilið þessum pósti með öðrum ljósmyndurum sem gætu haft áhuga!