Hugbúnaðarsetrið í samvinnu við IÐAN, stendur að námskeiðinu: Sérð þú réttu litina?
Fyrir hverja: Þetta námskeið hentar öllum sem vinna með ljósmyndun, myndvinnslu, grafíska hönnun eða annað sjónrænt efni þar sem nákvæmni í litum skiptir máli. Kennari er Art Suwansang, sérfræðingur í skjá stillingum og litastýringum. Þeir sem skrá sig, en geta ekki mætt á staðinn, geta fylgst með beinu streymi frá námskeiðinu. Allir skráðir þátttakendur fá aðgang að upptöku frá námskeiðinu.