Ljósmyndir: Gunnar Leifur Jónasson
90 nýsveinar í níu iðn- og verkgreinum fengu réttindi sín við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica þann 17. nóvember sl. Þar af eru voru tveir ljósmyndarar, þau Regína Rist og Víkingur Magnússon.
Guðmundur Skúli Viðarsson og Rakel Ósk Sigurðardóttir afhentu sveinsbréfin ásamt blómum og bókagjöf. Nýsveinar í ljósmyndun fá einnig fría aðild að Ljósmyndarafélaginu í eitt ár.
Ljósmyndarafélag Íslands óskar þessum glæsilegu sveinum til hamingju með áfangann og bjóða þau hjartanlega velkomin í fagið.