Back to All Events

Samferðamaður / Half a Cen­tury Through the Lens

  • 15 Tryggvagata Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Samferðamaður / Half a Cen­tury Through the Lens

Gunnar V. Andrésson býður gesti velkomna í spjall um sýningu „Samferðamaður“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sunnudaginn 4. maí kl. 14. Frítt inn!

Á sýningunni „Samferðamaður“ er farið yfir ríflega fimmtíu ára feril Gunnars V. Andréssonar fréttaljósmyndara – frá 1966 til 2017. Myndir hans, sem birtar voru í dagblöðunum Tímanum, Vísi, DV (Dagblaðinu Vísi), Fréttablaðinu og á fréttavefnum visir.is, eru ómetanleg heimild um íslenskt þjóðlíf.

Sýningin er sett upp á þann hátt að áhorfandinn gengur í gegnum tímann, ef svo má segja. Myndirnar eru sveipaðar tíðaranda hvers skeiðs fyrir og sýna glöggt breytingarnar sem urðu á tímabilinu – hvort sem er á umhverfi eða hinum ýmsu sviðum samfélagsins.

Kynningarmynd er eftir Þórir Guðmundsson.

Gestum er boðið að vera samferða Gunnari í gegnum sýninguna og heyra sögurnar á bak við myndirnar.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Ljósmyndasafninu. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar stoppa í Lækjargötu (5 mín. gangur) og leiðir 11, 13 og 14 stoppa á Mýrargötu (5-10 mín. gangur).
Bílastæði eru við Grófarhús og í nálægum bílastæðahúsum eins og Vesturgötu.
//
Welcome to an exhibition talk in Icelandic on Sunday, 4 May at 14:00. The exhibition „Half a Century Through the Lens“ explores press photographer Gunnar V. Andrésson’s career, that lasted more than fifty years – from 1966 to 2017. Guests will join Gunnar as he talks about the photographes in the exhibition and how they came about.

Admission is free of charge! Please note that the talk will be in Icelandic.

Access for people with disabilities is good. Service dogs are welcome at the museum.
Public transport: The nearest bus stops are called Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2–5 min. away).
Parking places are available by the museum and in neighbouring parking houses in Vesturgata 7 and Hafnartorg.

Previous
Previous
March 25

Hvernig á að mynda tónlist - viðburður hjá Ofar

Next
Next
May 14

Aðalfundur Ljósmyndarafélags Íslands