Alrýmið

Nýverið opnaði Alrýmið á Granda, nýtt vinnurými sem hentar vel fyrir hönnuði, listamenn, ljósmyndara og hvers kyns skapandi einstaklinga.

Í Alrýminu er m.a. fullbúið ljósmyndastúdíó með bæði svörtum og hvítum bakgrunni, öllum búnaði, förðunar- og skiptiaðstöðu. Í stúdíói eru ljós, ljósastandar, reflektorar, litaðir bakgrunnar, sandpokar, softbox, regnhlífar, skilrúm með bæði svörtu og hvítu efni, sync snúra og fleira.

Einnig er þar sérútbúið myrkraherbergi fyrir filmuljósmyndun með efnavinnslu og stækkara fyrir 35 mm, medium format og 4x5 stórformat filmur. Rýminu fylgir allt til alls m.a. framköllunarvökvar. Það eina sem þú þarft að koma með er pappír og filmur. Alrýmið heldur stöku sinnum myrkraherbergisnámskeið fyrir byrjendur.

Meðlimir Alrýmisins hafa aðgang fundarherbergi, skrifborðsaðstöðu og prentaðstöðu.

 Við hvetjum ykkur til að kíkja á alrymid.is ef þið eruð í leit að aðstöðu fyrir reksturinn.

Ljósmyndarafélag Íslands

Félag atvinnuljósmyndara á Íslandi

http://ljosmyndarafelag.is
Next
Next

Úthlutun úr Höfundasjóði Myndstefs