AÐALFUNDUR LÍ
Aðalfundur félagsins fór fram í gær 11. mars og mættu 11 félagsmenn á fundinn. Fundurinn gekk vel og afgreiðsla mála var hröð og skilvirk.
Lárus Karl, fyrrverandi formaður félagsins, var kosinn fundarstjóri og stýrði fundinum af festu.
Guðmundur, formaður félagsins, flutti skýrslu stjórnar og kynnti jafnframt ársreikning félagsins. Reikningurinn var samþykktur samhljóða af fundarmönnum. Hægt er að skoða ársreikninginn hér að neðan.
Engar tillögur bárust um lagabreytingar né breytingar á árgjaldi félagsins.
Engin framboð bárust til stjórnar á fundinum. Rán Bjargardóttir óskaði eftir lausn frá störfum í stjórn og var það samþykkt. Hún mun þó halda áfram störfum fram yfir afmælishátíð félagsins sem haldin verður 25. apríl næstkomandi.
Formaður kynnti einnig fyrirkomulag og dagskrá 100 ára afmælishátíðar félagsins, og mátti greina mikla tilhlökkun meðal fundarmanna fyrir þessari stóru og glæsilegu hátíð.
Staða félagsins er góð. Hins vegar er ljóst að þátttaka félagsmanna í starfi félagsins mætti vera meiri, og er mikilvægt að sem flestir félagsmenn taki virkan þátt í starfi þess á komandi misserum.
Ljósmyndir tók Gunnar Leifur