Skip to main content

Sjónarhorn er fyrirlestraröð Ljósmyndarafélags Íslands í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Fyrirlestrarnir eru í formi hádegisfyrirlestra og eru haldnir annann hvern fimmtudag yfir vetrarmánuðina sept - mai. Fyrirlestrarnir eru í fyrirlestrasal Þjóðminsjasafnsins og standa frá 12:00 - 13:00.


Sjónarhorn - Guðmundur oddur

Guðmundur oddur

í boði ljósmyndarafélags Íslands og Þjóðminjasafns Íslands mun Guðmundur Oddur halda fyrirlestur um ljósmyndun og notkun ljósmyndunar í listsköpun Fimmtudagurinn 13. Janúar 2011 í sal Þjóðminjasafns Íslands.

Þessi fyrirlestur fjallar um notkun listamanna á ljósmyndun. Bæði beinlínis og svo eftirmeðferð þar sem ljósmyndin er notuð í samsettar myndir. Farið verður yfir hugmyndasögu tuttugustu aldar og ljósmyndin sem tæki listamanna sett í samhengi við hana.

Listasagan er ekki tækni eða aðferðarsaga. Hún er fyrst og fremst saga hugmynda og þeirra sem segja okkur einhvern sannleika um okkur sjálf í formi spegilmynda. Hún er líka saga þeirra sem opna fyrir sannleikann á bak við spegilinn. Ljósmyndun er ein aðferð til listsköpunar. Hún er aðferð eins og hver önnur aðferð. Aðferðin er ekki listgrein í sjálfu sér. Sumum Listamönnum hentar að nota ljósmyndun meðan öðrum hentar málun eða málmsmíði. Sumir listamenn eru ekkert sérstaklega góðir ljósmyndarar - een verk þeirra óneitanlega list samt sem áður.

Hádegisfyrirlestur fimmtudaginn 9 desember 2010

ÁFRAM AFRÍKA - MYNDIR ÚR MYNDAVÉL

Hvergi í heiminum er knattspyrna í heimsklassa iðkuð við jafn erfið skilyrði og í Afríku.

Stjörnur á borð við Didier Drogba og Samuel Eto'o koma frá löndum þar sem fæstir spila í skóm og net þekkjast ekki í mörkum.

Þrátt fyrir þetta er knattspyrna leikin nánast alls staðar í öllum Afríkulöndum, á götum og torgum, 

á ökrum, þjóðvegum og ströndum af ástríðu og innlifun sem á ekki sinn líka.

 

Ljósmyndarafélag Íslands og Þjóðminjasafn Íslands bjóða þér á hádegisfyrirlestur með Páli Stefánssyni.  

Páll mun fjalla um nýútkomna bók sína Áfram Afríka ásamt ýmsu öðru skemmtilegu.

 

Sjónarhorn - RAX

Rax verður með hádegis fyrirlestur í þjóðminjasafni Íslands Fimmtidaginn 11 nóvember 2010 kl: 12:05

Rax verður með hádegis fyrirlestur í þjóðminjasafni Íslands Fimmtidaginn 11 nóvember 2010 kl: 12:05

 

 

Anna Ósk