ORRI - INNVIÐIR
Orri hefur um árabil myndað íslensk eyðibýli og á sýningunni Innviðir birtist yfirlit eyðibýlamynda hans frá árunum 1999-2010.
Um langt skeið hafa íslenskir ljósmyndarar heillast af íslenskum eyðibýlum, en athygli þeirra hefur oftar en ekki beinst að ytra byrði húsanna; á samhengi sjálfra bygginganna við umhverfi sitt og íslenskt landslag. Þar að auki hafa eyðibýlamyndir undanfarinna ára gjarnan verið svarthvítar og sveipaðar rómantískri mystík. Í ljósmyndum Orra kveður við annan tón. Þar er gerð tilraun til að fanga litríkan andann sem ríkir í innviðum eyðibýlanna og þá ómetanlegu litapallettu sem skapast þegar óreiðukennt veðurfar vinnur á veggfóðri, málningu og húsgögnum; á að fanga áru hins yfirgefna.
- Tengjast til að setja inn athugasemd
Leifur Þorsteinsson - Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Leifur Þorsteinsson er einn af brautryðjendum auglýsinga- og iðnaðarljósmyndunar á Íslandi. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1933 og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955 og hélt að því loknu til Kaupmannahafnar. Leifur nam eðlis- og efnafræði í þrjú ár áður en hann sneri sér alfarið að ljósmynduninni og stóð fyrir vikið feti framar samnemendum sínum í myndvinnslunni. Hann komst á samning hjá ljósmyndaranum Jan Selzer og vann meðfram námi hjá honum við gæðaeftirlit, efnavinnslu, mælingar á lit og önnur tilfallandi verkefni. Leifur hóf feril sinn hér á landi árið 1962 þegar hann kom aftur heim frá Danmörku.
- Tengjast til að setja inn athugasemd
