Tilkynning um ósóttar höfundagreiðslur til Myndstefs
Vakin er athygli myndhöfunda á því að í vörslu Myndstefs eru greiðslur sem ekki hefur reynst unnt að koma til viðkomandi höfunda. Á heimasíðu samtakanna: www.myndstef.is er listi yfir þessa höfunda. Því er beint til hlutaðeigandi myndhöfunda eða erfingja þeirra að þeir hafi samband við skrifstofu Myndstefs sem fyrst og eigi síðar en 5. desember n.k. Stjórn Myndstefs
- Tengjast til að setja inn athugasemd













