Skip to main content

Sænska ljósmyndarfélagið gefur út viðmiðunar verðlista fyrir 2011

Sænska ljósmyndarafélagið gefur út viðmiðunar verð fyrir ljósmyndara

Þessi verð handbók er gefin árlega út af Svenska Fotografers Förbund. Verð handbókinn inniheldur meðalverð, tillögur og skilyrði og er miðuð við ljósmyndara og kaupendur ljósmynda þjónustu.Meðalverð sem skráð eru í handbókinni eru byggð á upplýsingum frá atvinnuljósmyndurum, umboðsmönnum og ljósmynda stofnunum. Sveiflur í verði eru stórar í greininni því að það eru margir þættir sem hafa áhrif á verðið sem viðskiptavinurinn greiðir.Á eftirfarandi síðum stuttlega lýst nokkrum þáttum sem hafa áhrif á hvaða myndmuni kosta Þú getur skoðað verðlistan hér: http://www.sfoto.se/sites/default/files/page_attachments/sff_prisg_2011_web_k5.pdf Ef þið eruð ekki sleið í sænsku þá er hægt að copy/paste textan inn í translate.google.com og fá þetta á nokkurn vegin íslensku.

Athugasemdir

Ný tilraun

Kristján Logason's mynd

Fyrir nokkrum árum var gerð tilraun með að gera samskoar lista meðal Íslenskra ljósmyndara.
Gefist var upp á því vegna lélegrar svörunar og þess að menn vildu ekki gefa upp verðlagningu sína til félagsins af hræðslu við að þeir væru að gefa upp hernaðarleyndarmál.
það er kanski ekki úr vegi að gerð verði önnur tilraun núna.

Þetta er hægt og er ekki í trássi við samkeppnislög en forritið Fotoquote byggir jú á sömu hugmynd.

Gerð er könnun meðal starfandi ljósmyndara og meðalverð könnunarinnar er birt.

Það er eins og hver önnur verðkönnun á vegum neytendafélags og annarra og er gott bæði fyrir neytendur og ljósmyndara.

Ekki væri verra að með fylgdu samningar og leiðbeiningar um réttindi neytenda og skyldur ljósmyndar eins og í sænska dæminu.

Mikilvægt fyrir þá sem eru að koma nýjir inn í fagið.

Atli Már Hafsteinsson's mynd

Við vorum að ræða þetta á einhverjum fundinum þar sem lögfræðingur SA var viðstaddur.  Samhvæmt honum var ólöglegt að gefa svona út.  En það er eins og þú segir Kristján þá er þetta bara verð könnun sem er gefin út í bæklingi.  Skoðum þetta mál. En persónulega finnst mér þetta mjög mikilvægt fyrir fólk sem er að byrja í bransanum.  Ég þekki það af egin raun þegar maður er að byrja veit maður ekkert hvað maður á að rukka.  Og veit stundum ekki enn.kv. atli