Skip to main content

Janúar snjór í Noregi

Snævi þakinn nestisstaður í Noregi

Hvort sem menn trúa því eða ekki þá getur verið geisilega mikið að gera í vinnu á myndasafni. Slík vinna er líka endalaus og að mörgu að hyggja. Þannig erum við núna að endurskoða allt varðandi gagnagrunna, uppsetningu og sérstaklega skráningu á Metadata sem er jú nauðsynleg í dag vilji menn koma myndum á framfæri sem og finna þær sjálfir í sínum gagnagrunni.

Tengingar gagnagrunns okkar við umheiminn eiga eftir að aukast og brátt verður hægt að leita frá einu vefsvæði í öllum skjalasöfnum Noregs en þar að auki verður í samvinnu við Europeana local verkefni hægt að leita frá einni síðu í Evrópu að myndum og skjölum um gervalla Evrópu.

Þrátt fyrir mikla og að því er virðist oft á tíðum endalausa vinnu við innskönnun, myndvinnslu og afhendingu mynda til bókaútgefanda og einstaklinga, vinnst samt tími til að sinna listinni enn betur en áður.

Þannig skaust ég út í hádeginu einn daginn og náði þessari mynd af snæviþöktu nestisborði við ströndina.

frekari myndir sem ég hef tekið á ferðum mínum í Noregi og víðar þennan veturinn má sjá á www.aurora.is en einnig hef ég sett upp síðu fyrir listrænar myndir mínar á www.logason.com

þeir sem hafa áhuga á að kaupa myndir eftir mig geta haft samban við kristjan (hja) aurora.is eða kristjan (hja) logason.com